Lífið-Notkunarreglur

Lífið-Notkunarreglur



Lokaverkefni útskriftarárgangsins

Ævintýrið um okkur öll - full af hlýju, tónlist og leiftrandi húmor. Hvað var það nú aftur sem við áttum að gera við þetta blessaða líf? Erum við kannski að misskilja þetta allt saman? Eða er ástin ef til vill svarið sem allt snýst um? Litríkur hópur fólks stendur frammi fyrir áleitnum spurningum um framtíðina og eigin hlutverk í lifinu, spurningunum sem engin virðist geta svarað svo vel sé, enda fylgir sjaldnast bæklingur með börnunum sem fæðast í þennan heim. Hér er fjallað um sundurleitan samtíma og óvissa framtíð á svo mannlegum og hrífandi nótum að allir verða ríkari á eftir.

Tveir öflugustu leikhúsmenn þjóðarinnar, Þorvaldur Þorsteinsson leikskáld og Kjartan Ragnarsson leikstjóri voru fengnir til að leiða vinnuna með hinum ungu leikurum. Meðal rómaðra verka Þorvaldar eru ...and Björk of course, Blíðfinnur og Skilaboðaskjóðan.

Kjartan er einn reyndasti leikstjóri landsins og meðal eftirminnilegra sýninga hans eru Sjálfstætt fólk, Þrúgur reiðinnar og Land míns föður. Þetta er fyrsta sýning beggja fyrir LA.

Lífið – notkunarreglur er sett upp í samstarfi Leikfélags Akureyrar og Leiklistardeildar Listaháskóla Íslands

Höfundur Þorvaldur Þorsteinsson  
Tónlist Megas
Leikstjórn Kjartan Ragnarsson
Leikmynd og búningar         Þorvaldur Þorsteinsson
Tónlistarstjórn Magga Stína
Lýsing Björn Bergsteinn Guðmundsson
Hljóðmynd Magga Stína og Kristján Edelstein


Frumsýning 23. mars 2007 á Akureyri.

Leikarar: Útskriftarárgangur leiklistardeildar LHÍ og leikhópur LA:


Persónur og leikendur:

Stóri-Hvellur      veiðimaður í skóginum                                   Þráinn Karlsson
Sproti reiknimeistari og skrásetjari skógarins Magnús Guðmundsson
Ritar aðstoðarmaður meistarans Bjarni Snæbjörnsson
Vaka stúlka í skóginum Tinna Lind Gunnarsdóttir
Spóla söngvari á ferð um skóginn Sara Marti Guðmundsdóttir
Stemma fyrirmyndarnemandi og kennslukona Sigrún Huld Skúladóttir
Bjalla ræstitæknir og samferðakona Anna Svava Knútsdóttir
Gola dramadrottning og dýrðlingur svangra Kristín Þóra Haraldsdóttir
Hugi uppfinningastrákur Vignir Rafn Valþórsson
Snepill fréttagerðamaður og reynir (wannabe) Hallgrímur Ólafsson
Vörður vörður Ólafur Steinn Ingunnarson
Njörður vörður Guðjón Davíð Karlsson
Svörður vörður Páll Sigþór Pálsson


Hljómsveit: Magga Stína, Kristján Edelstein
Unnur Birna Björnsdóttir, Sigurður Helgi Oddsson
 
Gervahönnun: Ragna Fossberg

Dramatúrgísk vinna með höfundi: Kári Halldór Þórsson


Hugleiðingar höfundar, hér

Söngtextar, hér


Æfinga- og sýningarstjóri Þóra Karítas
Leikmunir, umsjón með búningum, hári og förðun Sunna Björk Hreiðarsdóttir
Hljóð – og ljósakeyrsla Georg Gunnlaugsson og Lárus
Heiðar Sveinsson
Ráðgjöf varðandi hljóð Gunnar Sigurbjörnsson
Stjórn leikmyndasmíði Dýri Bjarnar Hreiðarsson
Búningavinna Helga Oddsdóttir, Kristín Þöll Þórsdóttir
og Kristín Sigvaldadóttir
Útprentun og aðstoð við hönnun á gólfefni, veggmyndum,
Fjölmiðum o.fl
Hermann Arason/Prentsmiðjan.is


:
:
: : :
: :