Hvít kanína
Hvít kanína er samsett sýning eða "devised" leikhúsverk og er algjörlega unnið upp úr fundnum textum og hlutum sem leikhópurinn hefur safnað á æfingatímabilinu. Hvít kanína er því ekki leikrit heldur leiksýning. Leikhús þar sem hvorki áhorfandinn né leikhópurinn er óhultur og saman erum við efniviður sýningarinnar, lífsviðhorf okkar og gildismat. Hver erum "við" og hverjir eru "hinir"? Þegar allt dótið okkar er tekið í burtu, fyrir hvað stöndum við þá?
Jón Páll Eyjólfsson er leikstjóri, leikmynd og búningar eru í höndum Ilmar Stefánsdóttur, Hanna Käyhkö sér um ljósahönnun.