Blóðbrúðkaup
Annað verkefni ársins er hið klassíska verk Blóðbrúðkaup eftir F.G. Lorca. Ljóðræn og dramatísk harmsaga um ástir og hefndir.
Blóðbrúðkaup er allt í senn - blanda af hreinræktuðu raunsæi, ljóðlist og ævintýri. Harmsaga um ástir og hefndir í óbilgjarnri veröld sem endurtekur grimmdarverk og fávisku ætt fram af ætt, mann fram af manni jafnvel þó að allir viti að það endi aðeins með blóbaði.
Þetta er hin klassíska saga óleysanlegra átaka ástríðna og hefða. Ung stúlka er lofuð eigulegum pilti, en hjarta hennar tilheyrir enn fyrrum unnusta hennar sem þó er giftur annarri konu. Á brúðkaupsdegi stúlkunnar hleypur hún á brott með unnustanum fyrrverandi út í skóg. Brúðguminn og fjölskylda hans fylgja fast á hæla parsins í leit að hefnd og dauðinn virðist óumflýjanlegur.
Kamilla Mortensen er leikstjóri, Börkur Jónsson sér um leikmynd og búninga, Egill Ingibergsson er ljósahönnuður.