Sýningarnar
Á fjórða ári felst námið í þátttöku í nemendaleikhúsi. Þar eru sett upp þrjú verk undir stjórn atvinnuleikstjóra. Markmið nemendaleikhússins er að brúa bilið milli skólans og atvinnulífsins og gefa nemendum innsýn í rekstur leikhúss.
Útskriftarhópurinn 2007 sýndi tvö verk í Borgarleikhúsinu, Hvíta kanínu og Blóðbrúðkaup, en útskriftarverkið Lífið-notkunarreglur var svo sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar. Þetta var fyrsta samstarfsverkefni nemendaleikhússins og Leikfélags Akureyrar.
Veljið tenglana hér til vinstri til að skoða nánari upplýsingar um sýningarnar hjá nemendaleikhúsi Listaháskólans veturinn 2006-2007.