Námið
Útskriftarhópurinn er með BfA (bachelor of fine arts) í leiklist eftir fjögurra ára 120 eininga nám við leiklistardeild Listaháskóla Íslands, leikaranámi.
Í leikaranámi er áhersla lögð á sjálfstæði nemandans í vinnu með það að markmiði að skerpa sýn hans á eigin framvindu og vinnubrögð sem listamanns. Fyrstu tvö árin í leikaranámi fær nemandinn góða undirstöðu í öllum tæknifögum. Leiklistarsaga er kennd á þessu tímabili. Á þriðja ári er leiktúlkunarkennsla í brennidepli ásamt fræðinámskeiðum. Á fjórða ári felst námið í þátttöku í nemendaleikhúsi. Þar eru sett upp þrjú verk undir stjórn atvinnuleikstjóra. Auk þess skrifa nemendur B.A. ritgerð undir leiðsögn sérstaks leiðbeinanda. Markmið nemendaleikhússins er að brúa bilið milli skólans og atvinnulífsins og gefa nemendum innsýn í rekstur leikhúss.
Veljið tenglana hér til vinstri til að skoða nánari upplýsingar um námið.