Tinna

Tinna Lind Gunnarsdóttir





Tortryggðu alla stjórnmálamenn. Láttu ekki þjónustufólk komast upp með dónaskap. Gefðu fólki annað tækifæri, en ekki það þriðja. Vertu vingjarnlegri en nauðsyn krefur. Stefndu að snilld en ekki fullkomleika. Notaðu öryggisbeltin. Slökktu á sjónvarpinu í matartímanum. Syngdu í kór. Varastu sólbruna. Neyttu atkvæðisréttar. Láttu ekki fyrstu kynni blekkja þig. Haltu það sem þú lofar. Gagnrýndu fólk í einrúmi. Hringdu í mömmu þína. Hugsaðu meira um breidd en lengd í lífi þínu. Taktu hlátur foreldra þinna upp á segulband. Vertu sérstaklega kurteis og þolinmóður við aldraða. Gerðu meira en ætlast er til. Taktu eftir smáatriðum. Fáðu þér samheitaorðabók. Vanmettu aldrei hæfileika þinn til að breyta sjálfum þér. Verslaðu við kaupmanninn á horninu þó að sé eitthvað dýrara. Leitaðu einfaldleikans. Gefðu smáfuglunum. Glannastu ekki fótgangandi í umferðinni. Farðu alla leið.

Hafa samband